Myndasíða Magna og Guðbjargar

Góðan daginn gott fólk og verið velkomin á frumraun okkar til að halda uppi bloggsíðu.

Um okkur

Guðmundur Magni Helgason fæddur 1981 Dökkhærður og fallegur ;)

Guðbjörg Benjamínsdóttir fædd 1984 Ljóshærð, flott og falleg ;)

Við kynntumst í ágúst 2003 í gegnum sameiginlega vinkonu (Sollu), Magni bað reyndar um númerið hjá Guðbjörgu áður en hann hitti hana en hann sér nú ekki eftir því ;) Fyrstu hugmyndir hennar af Magna voru nú ekki merkilegar, hún hélt að hann væri bara enn einn tanaður huzlerinn en hann var nú ekki lengi að sýna henni að svo væri ekki, ljúfur inn við beinið :)

Við byrjuðum saman 6.sept 2003 eftir nokkur stefnumót. Magni flutti inn til hennar og mömmu hennar í jan 2004 og gekk það vel í þá mánuði sem það stóð, Martha (tengdó) hafði góð áhrif á lokauppeldi Magna áður en hann flutti út og á hann henni það að þakka :). Trúlofuðum okkur 6.mars 2004 á veitingastaðnum í Bláa lóninu í rökkrinu. Magni fékk aðeins að svitna en vissi innst inni að svarið yrði jákvætt, það stóð ekki á henni Guðbjörgu hans að svara og svarið var strax "JÁ". (að sjálfsögðu, hver getur sagt nei við svona hönk, hehe ;))

Martha flutti til Keflavíkur og við fluttum til Benna pabba Guðbjargar og svo fjárfestum við í okkar fyrstu íbúð á Laugarnesveginum, hún er 2 herbergja með baði :). Fluttum inn í sept 2004. Við erum búin að endurnýja hana og gera hana svakafína. Þetta hefur verið aðalpartýpleisið í bænum og vinsæll samkomustaður hjá vinum enda ekki furða, það vilja allir vera með svona frábæru fólki.

Magni vinnur sem smiður hjá Íslenskum aðalverktökum og Guðbjörg er í lögfræði í HÍ. Við erum mikið í jeppamennsku og eigum landcruiser eins og hefur væntanlega ekki farið framhjá neinum sem skoðar síðuna ;) Áhugamálin eru semsagt jeppaferðir og allskonar ferðalög, hitta vini og bara að skemmta okkur. Við eigum 2 kisur, voðalega sætar og fjörugar, Áróru og Blíðu.

Hérna erum við á Akureyri verslunarmannahelgina árið 2004 búin að vera saman í tæpt ár.

Hérna erum við uppá Grímsfjalli í Mars 2006

Hér erum við við Háafoss hjá Hólaskógi í júlí 2004

Hérna er Guðbjörg að útskrifast Vor 2004

Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 18
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 41950
Samtals gestir: 16008
Tölur uppfærðar: 16.3.2010 18:53:20

Vafraðu um

Á Magni að safna síðu hári??

 Hell yea sexy beast

 Nei heeelllddd ekki....


Sýna niðurstöður

Hvað er ég að gera hérna inni

 Ég er vinur ykkar :-)

 Ég kom hérna inn í gegnum aðra bloggsíðu

 Ég er bara að flakka um

 Ég er skyld/ur ykkur :-)


Sýna niðurstöður

Um mig

Nafn:

Magni og Guðbjörg

Farsími:

6953189 og 8626518

MSN netfang:

Magni81@internet.is

Afmælisdagur:

6. nóv 1981 og 14. apríl 1984

Heimilisfang:

Laugarnesvegur 40

Staðsetning:

Reykjavík

Tenglar