Ferðablogg um suðaustur Asíu

Ferðin- Thailand, Cambodia, Vietnam, Laos og endum aftur í Thailandi.

Um okkur

Nafn:

Magni og Guðbjörg

Farsími:

6953189 og 8626518

MSN netfang:

Magni81@internet.is

Afmælisdagur:

6. nóv 1981 og 14. apríl 1984

Heimilisfang:

Kvíslartunga 98 Mosó

Staðsetning:

Mosfellsbær

Heimasími:

5553189

Önnur vefsíða:

Facebook

Færslur: 2011 Júní

07.06.2011 15:59

Sapa....ef til vill mesta upplifun ferðarinnar og fleira til :)

Nú nálgast heimferð hjá okkur skötuhjúum. Við hlökkum hrikalega til að koma heim og hitta alla aftur en það er samt svolítið skrítin tilfinning að fara héðan eftir allt sem við höfum séð og upplifað. Við værum svo klárlega til í að koma aftur hingað einhvern daginn! :)
Síðast blogguðum við frá Hanoi í Víetnam. Upphaflega var planið að fara þaðan til Laos en það var óhjákvæmilegt fyrir okkur að breyta ferðaplaninu okkar vegna þess að tíminn hreinlega flaug frá okkur í Víetnam. Það var alveg ótrúlega margt að skoða og þess vegna fóru nokkuð fleiri dagar þar en gert hafði verið ráð fyrir. En við erum mjög sátt við allt sem við höfum gert í Víetnam og það eru næstum óteljandi fallegir staðir þar sem gaman er að skoða. Á síðustu metrunum ákváðum við að fara nyrst í Víetnam, rétt við landamærin við Kína í dal sem heitir Sapa. Þar er lítil borg og í kringum hana eru fjölmörg fjallaþorp. Við ákváðum að fara með ferðaskrifstofu sem heitir Ethnic Travels og við getum mælt með þessari ferðaskrifstofu við alla sem fara til Víetnam og vilja skoða eitthvað ósnortið og ó-túristalegt. Reyndar mælum við eindregið með því að allir sem fara til Víetnam reyni að komast til Sapa því þetta er einstakur staður. Þarna upplifðum við að minnsta kosti eitthvað sem ég efast um að við eigum eftir að gera aftur. Ferðin fólst semsagt í því að ganga eftir mjóum fjallastígum sem liggja frá Sapa og um fjallaþorpin, í gegnum hrísgrjónaakra í fjöllunum og skóga. Þetta var tveggja daga ferð og fyrri daginn gengum við 15 kílómetra í fjöllunum og enduðum í litlu þorpi þar sem við gistum heima hjá bændafjölskyldu. Við vorum bara fjögur í hópnum, við Magni, gaur frá Washington D.C og svo leiðsögumaðurinn okkar, 23 ára stelpa frá litlu fjallaþorpi nálægt Sapa. Í þessum fjallaþorpum búa mismunandi ættbálkar sem allir hafa sinn sérstaka klæðnað og fötin eru öll handsaumuð. Það var mjög gaman að sjá þetta og gaman að fólkið haldi í sín sérkenni með þessu. Þegar við lögðum af stað frá Sapa í byrjun slógust í för með okkur þrjár konur frá einum þessara ættbálka. Það var alveg hellirigning og slóðarnir allir í sleipri leðju. Við Magni vorum frekar klunnaleg að feta okkur niður bratta fjallastígana í allri drullunni en þessar litlu og nettu konur gengu þarna eins og að drekka vatn og leiddu okkur niður fjöllin. Við gengum framhjá hrísgrjónaökrum sem eru ræktaðir í stöllum í fjöllunum vegna þess hve bratt er á þessum stöðum. Margir af bændunum eiga vatnabuffalóa og þeir eru mjög mikilvægir fyrir fjölskyldurnar, enda notaðir til að plægja akrana. Hins vegar eiga bændurnir í stökustu vandræðum með að halda lífi í buffalóunum á veturna vegna kulda. Það getur haft mjög slæmar afleiðingar og uppskerubrest í för með sér ef það gerist. Húsin sem fólkið býr í myndu kannski ekki beint flokkast undir hús í íslenskum skilningi. Þetta eru óeinangraðir timburkofar, oft klæddir með stráum eða með stráþökum.  Allir stunda sjálfsþurftabúskap og fæstir hafa komið lengra en til Sapa á ævinni. Leiðsögumaðurinn okkar hún Mai sagði líka að lítið væri um að fólk flyttist í burtu, hlutfall þeirra væri líklega eitthvað um 5 af hverjum 1000. Það var alveg meiriháttar að koma til fjölskyldunnar þar sem við gistum um nóttina. Mjög gestrisin fjölskylda sem bjó í óeinangruðu timburhúsi sem var svo óþétt að við horfðum út um rifurnar. Kvöldmaturinn var eldaður á eldstæði yfir opnum eldi og þetta var besti matur sem við höfðum smakkað í Víetnam! Hrikalega góður matur hjá þeim. Svo eyddum við kvöldinu í fjöri og staupuðum heimabruggað hrísgrjónavín frá húsbóndanum. En...þessi ferð var semsagt alveg ógleymanleg og ég efast ekki um að við eigum oft eftir að rifja þetta upp, enda ólíkt öllu öðru sem maður hefur gert á ævinni.
Eftir Sapaferðina fórum við til Hanoi og flugum þaðan til Bangkok. Hér í Bangkok höfum við aðallega verið á röltinu en í dag fórum við til Kanchanaburi (fyrir utan Bangkok) og heimsóttum Tiger temple og fórum í fílaferð. Mjög skemmtilegt :)
En við eigum örugglega eftir að fara betur í ferðasöguna þegar við komum heim :)
Ciao
  • 1
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 11
Gestir í gær: 4
Samtals flettingar: 68480
Samtals gestir: 25255
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:46:21

Stóra ferðin Til Asíu

atburður liðinn í

1 ár

12 daga

clockhere