|
Ferðablogg um suðaustur Asíu Ferðin- Thailand, Cambodia, Vietnam, Laos og endum aftur í Thailandi. |
|
|
Um okkur Nafn: Magni og GuðbjörgFarsími: 6953189 og 8626518Tölvupóstfang: Magni81@internet.isMSN netfang: Magni81@internet.isAfmælisdagur: 6. nóv 1981 og 14. apríl 1984Heimilisfang: Kvíslartunga 98 MosóStaðsetning: MosfellsbærHeimasími: 5553189Önnur vefsíða: FacebookFlokkur: Jeppaferðalög08.04.2007 14:12JeppaferðJæja gott fólk og gleðilega páska. Best að setja inn eins og eins færslu vegna fjölda áskoranna. Það er nýr jeppi kominn í hlað, fyrir valinu var 4runner 94árg með 3lítra dísel vél. Hann er á 38"dekkjum með þessu helsta. Patrolinn er farinn og er ég ekkert að sakna hans. Ég og konan erum búin að fara eina jeppaferð á runnernum, við fórum með systkynunum í dagferð á Langjökul á föstudaginn langa. Þetta er feiki skemmtileg ferð í góðu og hlýju veðri og var runnerinn að standa sig með stakri príði, rosalega kraftmikill og léttur bíll, við fórum svo Kaldadalinn heim og skriðum inn heima um 11 leytið. Ég set inn myndir af ferðinni bráðlega, en ekki fyrr en ég er búinn að láta gera við tölvuna mína. Hún er eitthvað biluð og vona ég að harði diskurinn er ekki hruninn þar sem allt námsefnið mitt er inná honum. 22.11.2006 18:26Nýliðaferð Gemlinganna 2006Jæja sjaldséðir hrafnar, ég ætla að setja inn eins færslu af Nýliðaferðinni sem Gemlingarnir héldu í samstarfi við F4x4. Tek það fram að það eru myndir í albúminu mínu, undir jeppar og ferðir 2006. Lagt var í hann frá Select í rvík á föstudagskvöldi, í hópnum voru 24 jeppar og ca. 45manns við vorum 5 farastjórar. Ég, Kristján, Sveinbjörn, Jói og Gunni. Við fórum í gegnum Selfoss í átt að vegamótum þar sem við fórum uppeftir, við keyrðum Dómadalinn í átt að Landmannalaugum og gekk sú ferð nokkuð vel, það var einn nýliði sem festi sig á leiðinni niður brekku í Dómadalnum og Sveinbjörn braut stýfu og dempara eins og honum var einum lagið. Við vorum komin uppí skála um 1 leytið og þá var eftir að kynda skálann en það gekk ekki svo vel þar sem engar leiðbeiningar voru í skálanum. Þannig við byrjuðum bara að fikta og ýta á takka sem við fundum þangað til allíeinu kviknaði ljós og hitinn byrjaði eitthvað að malla. Svo var háttað og lagst í bælið Við vöknuðum um 9 leytið á laugardeginum, veðrið var gott heiðskýrt og 18stiga frost en logn. Við fórum inná slóða Fjallabak nyðri í átt að Jökuldölum og gekk ferðin ágætlega, ég leiddi hópinn þar sem hinir farastjórarnir voru eftir til að gera við jeppa Sveinbjarnar. Við sáum gamalt snjólóð sem við skoðuðum, Svo datt jeppinn minn niður um ís að aftan og tók það dágóðann tíma að ná honum upp þar sem hjólið hékk nánast að aftan, það var svo djúpt. En það gekk að lokum eftir mikla járnkallavinnu. Svo þurfti ég að skilja jeppan minn eftir þar sem þverstífuturn brotnaði að framan, nánast á þeim stað sem við snérum við. Lítið að gera við því annað en að redda suðupinnum og fá far hjá öðrum, Tryggvi gaf okkur far og náðum við svo sambandi við einn sem var í Hrauneyjum á leið til okkar og kom hann með suðupinna í leiðinni. Svo var farið að grilla uppí skála, og sá Sveinbjörn Kóngur um það af sinni alkunnu snilld. Gekk reyndar illa að halda hita á grillinu í 20 stiga frosti en með þolinmæði náðist það og allir fengu sitt. Eftir matinn fórum við svo fararstjórarnir að ná í jeppann minn og laga, og vorum við búnir að því 3 tímum seinna. Á sunnudeginum vöknuðum við í kafbyl og var farið að taka til í skálanum fyrir heimferð, ákveðið var að fara Hrauneyjarleiðina heim þar sem hún var auðveldust. Menn keyrðu í röð með ca. 4metra á milli bíla svo enginn týndist. Ég var nærri búinn að velta jeppanum mínum við að draga annan þar sem ég var í miklum hliðarhalla og jeppinn rann af stað og fólk stökk til og hoppaði á stigbrettið hjá mér áður en hann fór á hliðina, svo var hengt í annan jeppa sem keyrði fyrir ofan og ég spilaði jeppann upp ásamt því að keyra áfram í leiðinni. Það reyndi aðeins á sálina í manna þar. Svo var haldið áfram og gekk ferðin hægt en örugglega, við vorum komin heim um kvöldmataleytið, allir lúnir og þreyttir eftir langann dag. Mjög skemmtileg ferð með uppákomum og vil ég þakka öllum fyrir skemmtilega ferð. Skrifað af Magni 13.04.2006 19:24Jeppaferð í dag 13.april 06Jæja var að koma heim úr jeppaferð með Finni bróðir(Patrol). Nonni og nýja kellingin voru með mér í jeppa. Við lögðum af stað úr rvik kl.10 í morgun, keyrðum uppá Þingvelli og þaðan til Laugavatns þar sem við fórum á slóða sem lá uppað Hlöðufelli. Það var alveg geggjað veður, heiðskýrt og logn allan tímann. Það voru nokkrar ár á vegi okkar sem okkur tókst að sigra en það var á einum stað þar sem ég settist á kviðinn og fékk ég drátt hjá Finni bróðir. Svo fundum við okkur brekku þar sem við stoppuðum aðeins og lékum okkur bæði á jeppunum og snjóþotum. Svo keyrðum við framhjá Hlöðufelli til Skjaldbreiðs sem tók nokkurn tíma þar sem við lentum í smá krapa og Finnur þáði drátt.. tvisvar:) og svo lá leiðin uppá Skjaldbreið með smá hjakki og púður en vorum ekki svo lengi. Það var alveg rosalega flott útsýnis þar uppá, sást bara í allar áttir. Voru nokkrir jeppakallar þarna með vélsleða og fjórhjól. Þegar Skjaldbreiður var sigraður lá leiðin niður og heim með smá viðkomu í brekkum hér og þar, þar sem látið var reyna á vélarafl og dekkjagrip! Meira er það ekki núna, það eru myndir inní albúminu af þessari ferð. Skrifað af Magni
Flettingar í dag: 4 Gestir í dag: 2 Flettingar í gær: 11 Gestir í gær: 4 Samtals flettingar: 68480 Samtals gestir: 25255 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 05:46:21 |
clockhere Eldra efni |